Færsluflokkur: heilsa

Dagur 11

Kl. 18:30.

Í dag var þvílíkt rok í gönguferðinni að ég hélt að ég mundi fjúka á haf út, en það rigndi að minnsta kosti ekki, og það var sólskin með köflum í mestallan dag. Varmáin er bólgin og vatnsmikil, og fossinn sem ég man ekki hvað heitir er tilkomumikill að sjá þar sem kolmórautt vatnið gusast niður hann. Ég hef orðið að loka glugganum hjá mér undanfarnar nætur til að fá svefnfrið fyrir veðrinu, og geri ráð fyrir að skortur á hreinu lofti hafi gert það að verkum hvað mig hefur dreymt undarlega í nótt og síðustu nótt.

Er búin að vera að drepast í bakinu í allan dag, og fór loks út í apótek og keypti Íbúfen. Þarf að tala við lækninn og fá hjá honum Naproxen eða Voltaren, það virkar betur á mig en Íbúfenið.

Brá mér í labbitúr um bæinn eftir hádegið, og varð hissa á því að sjá hvað það eru rosalega margir matsölustaðir hérna, bæði kaffihús, skyndibitastaðir og veitingahús, og flest við sömu götuna. Skal telja þau og birta niðurstöður síðar. Líklega er ferðamannaiðnaðurinn orsökin.

Ég finn að þó ég sé með bakverk, þá er ég að styrkjast og úthaldið að aukast, og harðsperrurnar eru að minnka. Ég er að hugsa um að fara í þolgöngu nr. 4 á morgun. Hún er ca. 10 mínútum lengri en nr. 3 sem ég hef verið að fara í, og heldur hraðari. Ég hef þá helgina til að jafna mig ef ég ofkeyri mig. 


Dagur 10

Kl. 15:30.

Kærar þakkir fyrir hvatninguna. Mér líður mun betur í dag, enda hefur sést til sólar. Allir gluggar í húsinu eru þaktir í laufum sem lægðin hefur tætt af trjánum, og laufin fljóta í sundlauginni og pottunum og skreyta botninn. Talsvert hreinsunarstarf sem þarf að sinna þar. 

Mig er ekki hætt að dreyma um mat - ef einhver getur túlkað þennan draum, þá væri gaman að heyra (lesa) túlkunina: Mér fannst ég vera í stórborg, í fylgd Friðriks, sem var klæddur eins og mafíósi í Amerískri bíómynd. Ég kaupi mér samloku, baguette með skinku og osti, en rétt þegar ég ætla að bíta í hana hrækir kona á bak við mig og hrákinn lendir á samlokunni, og við lendum í rifrildi um það hvort hún eigi að kaupa handa mér nýja samloku. Þá kviknaði á útvarpsvekjaranum, enda eins gott, því að stefndi í slagsmál í draumnum. Var svo hálfsofandi fram undir hádegi og ætlaði varla að nenna í þolgönguna.

Ég fór í vigtunina í morgun og hafði lést um svo mikið sem... 300 grömm! Reyndar var ég í þyngri fötum en í fyrstu vigtuninni, þannig að þau gætu hafa verið 500. Veit ekki alveg hvers vegna þetta er svona lítið, en tel að hluti af því sé að ég hef verið að borða meira á kvöldin en ég er vön. Ætla að fara aftur í minn gamla átvana: að borða bara stóra máltíð á morgnana og í hádeginu, en léttri mat á kvöldin. Metið í hópnum var tæplega fjögur kíló, og það hjá manninum sem hreyfir sig minnst af okkur öllum, því hann er með hnémein og fer ekki í gönguferðirnar.

Fór svo í tíma í sundlauginni eftir hádegi í dag, þar sem er blandað saman leikfimiæfingum og sundi. Það var mjög gaman, og eitthvað sem ég gæti haldið áfram eftir að ég kem heim. Verð líklega með harðsperrur í mjöðmunum á morgun, því við vorum látin synda skriðsund með sundflipa á fótunum, sem er auðvitað meira átak en að synda án þeirra.

--

Sumt starfsfólkið hérna fer um húsið á hlaupahjólum. Ég er ekki hissa, því vegalengdirnar hérna er þannig að það er örugglega hægt að ganga sig niður að hnjám á einum vinnudegi ef maður á oft erindi út um allt hús.


Dagur 9

Kl. 17:20:

Veðrið er farið að leggjast í geðið á mér, sem er ekki gott því slíku fylgir aukin matarlyst. Ég hef átt erfitt með mig í dag og í gær að fá mér ekki aftur á diskinn á matmálstímum, og svo dreymir mig um súkkulaði á nóttunni.

Winston Churchill líkti þunglyndi við svartan hund sem elti hann um allt, en mér finnst það frekar vera eins og að maður sé með byrðar á bakinu sem sífellt þyngjast meir og meir. Suma hafa þær sligað en sem betur fer hafa mínar aldrei orðið svo þungar, en það er samt erfitt að bera þær. Það hjálpar mér ekki að báðar ömmur mínar hafa átt við vanheilsu að stríða undanfarið og ég hef áhyggjur af þeim.

Ég held reyndar að það séu einhverjir samningar við veðurguðina í gildi hérna, því það stytti upp að mestu og lægði talsvert í morgun rétt á meðan við vorum í þolgöngunni, og svo byrjaði aftur að blása og rigna þegar göngunni var lokið. Þolgangan í morgun var í hressilegri kantinum, og ég sé fram á að ég geti fært mig í göngu 4 eftir helgi, því úthaldið hjá mér batnar dag frá degi.

Harðsperrurnar eru enn til staðar, en á nýjum stöðum, því sjúkranuddarinn hamaðist á blettum á rassinum á mér og mjöðmunum sem eru svo hrikalega aumir eftir nuddið að það var kvöl að gera sumar æfingarnar í sundleikfiminni í morgun.

Ég er búin að fá æfingaáætlun fyrir tækjasalinn. Ég er ekki með ákveðna tíma þar, en get farið þangað hvenær sem mig lystir, sem er fínt til að fylla upp í tómu tímanna.

Í dag vorum við, auk vatnsleikfimi og þolgöngu,  á matreiðslunámskeiði. Annar kokkurinn tók okkur í sýnikennslu í að búa til graskerssúpu, húmmus og ofnbakaðar kartöflur, og kona frá NLFÍ spjallaði við okkur um heilsusamlegt mataræði.

Á morgun er svo vigtun. Hún fer fram klukkan hálf-átta um morguninn, til að tryggja að við séum fastandi.


Dagar 7 og 8

7:45
Af sunnudeginum er svo sem lítið að segja annað en það að veðrið var skelfilegt – en þið sem búið á Reykjavíkursvæðinu þurfið svo sem engar lýsingar á því. Það var ekki gaman að keyra austur í þessu.


Þó að ég hafi haft fyrirmæli um að hvíla mig í dag, þá fór ég nú samt á hlaupabrettið og gekk rösklega í 25 mínútur með tónlistina úr Mamma Mia! í eyrunum. Þetta er alveg verulega góð æfingatónlist sem veitir manni bæði örvun og aukinn styrk. Mæli með henni við alla.


Í gærkvöldi uppgötvaði ég síðan að það var komið nýtt púsluspil í almenninginn, en þar eru sett upp púsl sem allir geta tekið þátt í að raða saman. Þetta var eitt af þessum þar sem maður hefur ekki fyrirmyndina fyrir framan sig, heldu á maður að púsla saman myndinni af því sem fólkið í myndinni framan á kassanum sér. Á endanum vorum við sjö saman við að leysa púslið, og kláruðum það á einu kvöldi. Magni, sá sem var með spilabúðina og flutti þessi púsluspil inn á sínum tíma, er hérna og segir að gamla metið hafið verið fjórar manneskjur sem tóku jafn marga daga í að leysa púslið, en það hafa bara verið amatörar...


Í dag er svo fullt prógramm, fyrst leikfimi, síðan þolganga, svo fræðslufundur með sálfræðingi og loks sjúkranudd.

--

16:15
Er búin að vera hálf-þreklaus í allan dag, líklega vegna þess að ég átti erfitt með að sofna í gærkvöldi og fékk ekki fullan svefn. Tókst samt að komast í gegnum leikfimina og gönguna skammlaust, en geispaði svolítið mikið á fundinum með sála. Hann var að fjalla um árangursríkar leiðir til að talast á við ofát, og lagði m.a. annars fyrir okkur rúsínupróf. Það felst í því að skoða rúsínu eins og maður sé að sjá slíkt fyrirbæri í fyrsta skipti: snerta hana, virða hana fyrir sér, þefa af henni, smakka á henni og loks kyngja henni. Lét okkur síðan ræða hvaða lærdóm maður gæti dregið af þessari æfingu, sem er auðvitað sá að maður þurfi að hugsa meira um það sem maður lætur ofan í sig.


Er nú nýkomin úr sjúkranuddi. Fékk það hjá snaggaralegri konu sem heitir Beata og gæti verið þýsk eða pólsk, ég á ekki gott með að greina hreiminn hennar, en hún hefur verið hér í mörg ár og talar góða íslensku að öðru leiti. Fékk nudd út um allan skrokk á korteri, sem má teljast gott, en ekki mjög afslappandi. Er nú öllum lurkum lamin – sem er auðvitað ekkert nýtt, því á undanförnum dögum er ég búin að uppgötva á mér vöðva sem ég vissi hreinlega ekki að væru til, og mig verkjar í þá alla.

--

Ég vil að lokum þakka öllum sem hafa skrifað í gestabókina fyrir góðar kveðjur og óskir um velgengni. 


Dagur 6

Svo sem ekki mikið að segja í dag, en ég stalst á vigtina og hún sagði 101 kíló. Er að hugsa um að skreppa í sund í dag, svona til að halda þjálfuninni áfram. Kemst ekki í labbitúr því ég asnaðist til að skilja gönguskóna mína eftir fyrir austan. Á morgun verður svo afslöppun, að skipan læknisins sem sagði að við þyrftum að taka einn "rauðan dag" á viku til að slaka á.

Dagur 5

Er heldur betri í bakinu í dag, sérstaklega eftir svakalega fínt slökunarbað sem ég fór í klukkan þrjú. Kom upp úr ilmandi af blóðbergi og öðrum blómum, en út í baðvatnið fer olía unnin úr íslenskum jurtum hjá Purity Herbs. Verð í svona böðum næstu föstudaga. Jibbí! Ég er líka búin að fá tíma í sjúkranuddi og fer með íþróttakennaranum í tækjasalinn á mánudaginn og fæ æfingar.

Baðkarið er gamalt grænt tröll sem trónir uppi á háum palli sem maður þarf að klifra upp á. Það er með stærðarinnar stjórnborði með alls konar krönum og rofum, þar á meðal nuddrofa og rofa fyrir rafmagnsbað, en er í dag víst bara notað fyrir heilsuböðin.

Ég fór líka í þrekpróf í dag sem fólst í því að ganga fram og aftur eftir einum ganginum í 6 mínútur eins hratt og maður komst án þess að hlaupa og meta síðan hversu erfið manni þótti gangan. Íþróttakennarinn og sjúkarþjálfarinn töldu mig vel komna í gönguhópi nr. 3, sem ég hef verið að ganga með undanfarið. 

Svava, þú minntist á nafngiftir á stöðum þarna í síðasta kommenti - það er alveg rétt. Gangurinn sem ég er á heitir t.d. Sprengisandur og næsti gangur Langisandur. Bæði eru réttnefni, enda gangarnir langir mjög og erfiðir fyrir fólk sem er stirt eða á erfitt með gang, enda Sultartangi hafður sem matsalur til að spara þeim gönguna inn í stóra matsalinn. Svo heita nýjustu gangarnir Gullströnd, Perluströnd og Demantsströnd. Þeir eru næstir matsalnum, bókasafninu og sundlauginni, og eru með stærri herbergi með meiri þægindum, enda kostar meira að vera í þeim herbergjum.

Nú er ég komin heim í helgarfrí og fékk góðar móttökur frá tveimur einmana páfagaukum, enda hafa þeir bara séð Friðrik í smátíma á dag síðan ég fór austur, en eru vanir að fá að fljúga lausir í klukkutíma á dag þegar ég er heima.


Dagur 3

Kl. 18:00.
Þá er prógrammið byrjað. Í dag var það 50 mínútna leikfimi kl. 8 og ca. 40 mínútna þolganga klukkan 11. Ég fór í göngu nr. 3, sem er næsterfiðasta gangan, og svipuð og 5 km. gangan sem ég hef farið með mömmu á Skagaströnd (svona fyrir þá sem þekkja til), þó heldur meiri brekkur. Það var gengið upp með Varmá og upp í skógræktina, en hún endar bara hérna við lóðarmörkin. Það var hætt að rigna, en ennþá blautt yfir.

Ég er enn hvorki búin að fá tilsögn í tækjunum né tíma í nuddi eða heilsuböðum. Eftir hádegi var svo stuttur fundur með Steinunni hjúkrunarfræðingi (Kóngulóarkonunni).


--
Það eru hátalarar inni á herbergjunum hérna og tvisvar á dag, í hádeginu og klukkan rúmlega tíu á kvöldin, er útvarpað slökunardagskrá inn á öll herbergin. Í fyrrakvöld var ég farin í háttinn klukkan hálf-tíu. Ég var svo sem ekkert búin að pæla neitt í hátalaranum, en það átti eftir að breytast, því um kl. 22:20 hrekk ég upp af værum blundi við það að slökunardagskráin fer í gang. Ég rýk á fætur og reyni að slökkva, en auðvitað er það ekki hægt, og ekki heldur að taka úr sambandi, því snúran er tengd inni í vegginn. Ég lækka því niður í tækinu, en heyri samt vel orðaskil, sem þýðir að ég gat ekki reynt að sofna í þær 20-30 mínútur sem dagskráin stóð. Það er ekki séns að ég geti notfært mér þessa slökun, því þetta er fólk sem talar eins og prestar sem eru að ræða um líf og mannkosti heiðursgestsins í jarðarför, með slepjulega vöggustofutónlist á bak við sig. Þetta endurtók sig síðan í gærkvöldi, og þá fór ég fram og talaði við næturvaktina. Þær gátu sjálfar ekkert heyrt og héldu að kerfið væri bilað. Þær ákváðu síðan að vera ekkert að útvarpa dagskránni þarna um kvöldið, en vitiði hvað: ég fékk mér kríu eftir hádegismatinn í dag, og fimm mínútum eftir að ég skreið upp í og var á leið inni í draumalandið fór slökunardagskráin af stað. Garg! Það væri hægt að nota þetta helvíti í heilaþvott!


Ég tók mig til og kvartaði við Steinunni á fundinum. Vona að eitthvað verði gert í málinu svo ég geti fengið minn fegrunarblund í nótt. Það væri lágmark að setja rofa á snúruna svo maður geti kveikt og slökkt á þessu. Vona að kenning mín um heilaþvott sé ekki rétt...


Dagur 2, færsla 2

Kl. 20:00.

Hér er súld. Áðan þegar ég fór í sund var óvenjuleg rigning: hún var lóðrétt! Mjög notalegt að finna hana leika um líkamann á meðan maður gekk á milli lauganna, enda var hún ekki neitt sérstaklega köld. Ég afrekaði svo að synda heila 240 metra. Vona bara að ég vakni ekki upp með hálsríg í fyrramálið eins og hefur einstaka sinnum komið fyrir eftir sundferðir. Þyrfti að kaupa mér augndropa, því klórinn fer illa í augun á mér. Eða kannski að ég kaupi mér sundgleraugu, en bara ef ég finn einhver sem eru með ábyrgð gegn því að fyllast af vatni við eðlilega notkun.

Sundaðstaðan hérna er frábær. Það eru tvær sundlaugar, úti- og inni-, innilaugin er 15 metrar og ég giska á að útilaugin sé 25 metrar. Heitu pottarnir eru 3. Einn er bæði inni og úti og rúmar örugglega hátt í 30 manns. Annar hinna er með nuddi, ekki bara þessu venjulega, heldur er svæði þar sem maður getur lagst niður og látið hann nudda næstum allan skrokkinn á sér í einu. Svo eru það víxlböðin. Þar byrjar maður á að ganga eftir ca. hnédjúpu trogi í mjög heitu vatni, síðan eftir öðru trogi með 10-12°C heitu vatni, og endurtekur tvisvar. Kemur blóðrásinni vel af stað, en mann lagar helst að öskra þegar maður kemur með lappirnar ofan í kalda vatnið.Það er líka sána og gufubað (sem sagt, þurrt OG blautt), en ég er ekki búin að prófa það.

Ég er ekki búin að fá sérstundaskrána mína, en læknirinn ætlaði að setja mig í nudd og slökunarböð ofan á hópagskrána. Í fyrramálið byrja ég daginn með venjulegri leikfimi, og fer síðan í einhverja kynningartíma og viðtöl.

 


Dagur 2

Kl. 9:30.

Hér rignir. Ég vaknaði klukkan 3 við að einhver skellti hurð á klósettinu – það er hrikalega hljóðbært hérna – og sofnaði ekki aftur. Það hefur rignt frá a.m.k. klukkan 4, svona ekta ausandi íslensk haustrigning. Mjög fegin að gönguferðirnar byrja ekki fyrr en á morgun, og vona að þá verði stytt upp.

Byrjaði daginn með morgunverði. Hér er boðið upp á afskaplega hollan morgunmat: tómatar, gúrkur, 17% ostur og sojaostur í boði ofan á rúgbrauð, flatbrauð og 2 aðrar tegundir af rúgbrauði. Það er smjör á boðstólum – og reyndar las ég í gær að öll fita, hvort sem hún er úr jurta- eða dýraríkinu, inniheldur nákvæmlega jafn margar hitaeiningar, þannig að Létt & Laggott er bara sniðugt fyrir hjartað en ekki mittismálið. Auglýsingarnar eru sem sagt villandi og ætti að kæra þær. Svo er L&L bara vont. En áfram með morgunmatinn: það er hægt að fá sér hafragraut eða AB-mjólk, og alls konar múslí og fræ og klíði saman við, og líka ávexti. Síðan eru ca. 20 tegundir af tei og jurtaseiði, og hunang út í. Ekki hvítur sykur í sjónmáli. Ef einhvern langar í kaffi getur hann bara keypt sér það út í búð og hunskast með það inn í þvottahús til að hella upp á. Í gamla daga var víst bara hægt að hella upp á í reykhúsinu (sem er nú niðurlagt), þannig að reyklausir þurftu að skreppa út í Eden ef þá langaði í sopa.

Síðan tók við sundleikfimi, hörkugóð hreyfing í ca. hálftíma, mikið sprikl, og hopp, en allt í hægagangi út af vatninu. Ég fór svo og hitti lækninn, sem sagði mér að ég væri með „góða“ tegund af offitu, þ.e. ég er svokallað epli (með fitu á maga og rassi) og þar með ekki í áhættuhópi vegna hjarta- og æðasjúkdóma eins og perurnar (fitusöfnun á rass og læri). Hann sagði líka að það væri ólíklegt að ég yrði nokkurn tímann tágrönn aftur, og að ég mundi líklega ekki léttast mjög mikið. Ég sagði honum að það væri ekki tilgangurinn með minni veru á staðnum, ég vil bara léttast nógu mikið til að losna við bakflæðið, hvort sem það verður vegna megrunar eða að magalæknirinn samþykki loksins að taka mig í aðgerð (hann vill fá mig niður í 80 kíló).Hann minntist líka á að hér væri unnið eftir því að ná fólki niður í þyngd sem ekki hefði slæm áhrif á heilsuna, en hún getur verið vel yfir svokallaðri kjörþyngd.

Ég fór líka á vigtina í morgun, og vó þá 101,6 kg. í fötum, þannig að ég er ca. 101 kg.

Næst er svo kynningarfundur, þar sem væntanlega verður farið ofan í saumana á meðferðaráætluninni.

Kl. 10:30.

Kynningarfundurinn búin. Þar fjallaði leikfimikennarinn um meðferðina og æfingar og annað sem við þurftum að vita.

Var ég annars búin að minnast á rigninguna? Hún er blaut, það er mikið af henni, það er rok, og leikfimikennarinn var að enda við að leggja til að við færum út að labba.


Dagur 1

Kl. ca. 14:00.

Jæja, þá er maður mættur á staðinn: HNLFÍ í Hveragerði. Hér er þráðlaust net, en sambandið er svo slæmt inni á herberginu mínu að ég þarf að fara fram til að komast á netið, enda er það staðsett á bókasafninu. Samkvæmt kortinu af byggingunni er bara lengra þangað úr kapellunni, enda er ég staðsett á Sprengisandi, sem er einn af elstu íbúðargöngunum í byggingunni. Bókasafnið er aftur á móti á miðsvæðinu á milli Gullstrandar og Perlustrandar, en þar er nýjustu herbergin, sem bjóða upp á svona óþarfa lúxus eins og sjónvörp og einkabaðherbergi.

Á myndinni til vinstri (þeirri efri) má sjá herbergið mitt. Það virkar stærra en það í rauninni er. Þessi álma var byggð um miðjan sjötta áratuginn, og mér sýnist fataskápurinn vera upprunalegur, en skrifborðið og hægindastóllinn bera með sér að vera frá þeim sjöunda. Rúmið er sem betur fer nýlegt, enda vönduð sjúkrarúm á öllum herbergjum. Byggingin hérna er öll á einni hæð og ægir saman gömlu og nýju. Þetta er svo mikið völundarhús að hvaða flugstöðvarhönnuður sem er mundi fyllast öfund ef hann sæi húsið, en auðvitað er skalinn talsvert minni þó vegalengdirnar virðist vera svipaðar.

Í dag var á dagskránni viðtal við hjúkrunarfræðing, og klukkan 5 er leiðsögn um stofnunina. Hjúkkan heitir Steinunn, en ég kalla hana í huganum Kóngulóarkonuna, af því að ég taldi einar 4 kóngulær inni á skrifstofunni hennar, sem er ekki mikið stærri en herbergið mitt. Ein var meira að segja í gardínunni við skrifborðið hennar. Mamma hefði fengið slæman hroll þarna inni. Mig langaði bara að ná mér í kúst.

 Kl. 17:50.

Jæja, þá er skoðunarferðinni lokið og maður búinn að hitta flesta hina úr hópnum. Aldursdreifingin er allmikil: yngst er stúlka sem er rétt rúmlega tvítug, það er ein sem virðist geta verið á svipuðu róli og ég, og svo er restin á fimmtugs- og sextugsaldri. Þyngdardreifingin er líka breið.

Ég sá á kort áðan: það var greinilega snilldarbragð hjá mér að velja Sprengisand, því það eru um 250 metrar úr herberginu mínu á bókasafnið, og aðeins lengra í matsalinn. Sem sagt: hálfur kílómetri fram og til baka. Svona til viðmiðunar þá labba ég 650 metra í vinnuna heiman að frá mér.

Innréttingar í setustofum og á göngunum hérna eru frekar elliheimilislegar: borðin virðast ýmist vera bambus, eldgömlu tekki eða ljósum stofnanavið og svo eru stórrósóttir hægindastólar og sófar, og það eru málverk út um allt, helmingurinn af þeim af góðvinum NLFÍ, sum í fullri líkamsstærð, öll með góðlátlegan svip á andlitinu til að hræða ekki gestina, þó einn sé hálf skelfilegur til andlitsins, en ég held að það sé málaranum að kenna en ekki skaparanum.

Á morgun byrjar svo ballið með læknisskoðun, kynningarfundi og fundi með næringarráðgjafa. Kannski vatnsleikfimi, en annars hefjast ekki æfingar fyrr en á miðvikudaginn. Annar matsalurinn hérna ber það virðulega nafn Sultartangi. Þar var víst aðstaða fyrir þá sem voru í megrun í gamla daga, en mér skilst á Steinunni að þeir hafi lifað á gulrótarsafa og kjötsoði og verið í stólpípumeðferð. Mikið er ég fegin að það er búið með svoleiðis miðaldameðferðir. Nú koma þangað þeir sem eru of hrumir eða veikburða til að ganga hálfan kílómetra til að komast í og úr mat.


« Fyrri síða

Um bloggið

Hér og þar og alls staðar

Höfundur

JG
JG

Ég er þýðandi að atvinnu og aðaláhugamálin eru lestur og ferðalög. Bloggið fjallar aðallega um ferðalög, en veturinn 2014-2015 var mikið fjallað um húsbíla, því þá var ég, með góðri aðstoð og verkstjórn föður míns, að breyta Volkswagen Caddy sendiferðabíl í einn slíkan og hélt dagbók yfir ferlið, sem vonandi getur gagnast öðrum sem hafa hug á að gera hið sama. Nú er ég farin að ferðast á bílnum og því aftur byrjuð að blogga um ferðalög.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...23_16_41_09
  • 233px-deutschland lage des saarlandes svg.png
  • ..._10_14-3027
  • ...capture
  • ...ack-tattoo4

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 32497

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband