Framkvæmdum við húsbílinn miðar nú vel áfram

Innréttingin, í p-rtumVið tókum niður rúmið og innréttinguna á laugardaginn og svo tók við tímafrek en nauðsynleg vinna við að verja viðinn gegn óhreinindum og raka. Það gerðum við með því að lakka allan krossviðinn og olíubera beykið. Nú liggja innréttingin og platan framan af rúminu (eða öllu heldur standa upp á rönd) í pörtum inni í stofu hjá foreldrum mínum á meðan olían er að sjúgast inn í viðinn og harðna. Pabba fannst vissara að það gerðist við stofuhita. Eins og sjá má er kominn djúpur og hlýr litur á viðinn.

Af rúminu er enn smávegis eftir sem þarf að gera, en það er ekki mikið: setja upp stoð undir höfðalagið og festa lamir á hurðina fyrir klósetthólfið. Innréttingin er fullhönnuð og það sem er eftir að gera fyrir hana er að skrúfa hana aftur inn í bílinn, setja framhliðarnar á skúffurnar, festa kranann, líma niður vaskinn og tengja vatnslagnirnar.

HnúðarnirPabbi tók sig meira að segja til og renndi hnúða til að setja framan á skúffurnar og vængjahurðirnar. Þó svipaðir hnúðar kosti bara um 200-kall í Bauhaus finnst mér miklu skemmtilegra að hnúðarnir í innréttingunni minni skuli vera sérsmíðaðir.

Það er gaman að eiga svona fjölhæfan og laghentan mann í fjölskyldunni.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér finnst frábært hjá pabba þínum að renna hnúðana á innréttinguna fyrir þig, hún verður svo mikið persónulegri og eigulegri fyrir vikið - bara snilld :)

Svava 24.1.2015 kl. 08:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hér og þar og alls staðar

Höfundur

JG
JG

Ég er þýðandi að atvinnu og aðaláhugamálin eru lestur og ferðalög. Bloggið fjallar aðallega um ferðalög, en veturinn 2014-2015 var mikið fjallað um húsbíla, því þá var ég, með góðri aðstoð og verkstjórn föður míns, að breyta Volkswagen Caddy sendiferðabíl í einn slíkan og hélt dagbók yfir ferlið, sem vonandi getur gagnast öðrum sem hafa hug á að gera hið sama. Nú er ég farin að ferðast á bílnum og því aftur byrjuð að blogga um ferðalög.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • ...23_16_41_09
  • 233px-deutschland lage des saarlandes svg.png
  • ..._10_14-3027
  • ...capture
  • ...ack-tattoo4

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 32539

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband