Laugardagur, 27. desember 2014
Hver haldiði að hafi fengið klósett í jólagjöf?
Hver önnur en ykkar einlæg? Ég fékk sem sagt ferðaklósett frá foreldrunum og þau sem voru búin að lýsa því yfir og lofa hátíðlega að ég fengi bara eitthvað lítið í jólagjöf þetta árið. Þetta var hins vegar bæði stór gjöf og dýr. Ekki að ég sé neitt að kvarta...
Ég held reyndar að ég hafi aldrei fengið eins mikið af gagnlegum gjöfum og þessi jól og verið jafn ánægð með þær. Næstum allar gjafirnar sem ég fékk tengjast húsbílnum á einhvern hátt, og hinar eru gagnlegar líka. Ég fékk, fyrir utan klósettið, ferðagashellu, bílslökkvitæki, rafgeymabox og með því brúsa af sótthreinsivökva fyrir klósettið (líka frá foreldrunum) og ferðahandbókina 155 Ísland: Áfangastaðir í alfaraleið. Þar fyrir utan fékk ég borvél og tvö súkkulaðistykki.
Borvélin er áhald sem ætti að vera til á öllum heimilum og borvélin mín gamla var orðin slitin og léleg þannig að þetta var eðalgjöf. Nú get ég aftur farið að hengja upp myndir af fullum krafti. Svo er fátt matarkyns sem gleður sálina jafn mikið og gott súkkulaði.
Nú klæjar mig bara í puttana að hefja aftur framkvæmdir við bílinn, en það verður víst að bíða þess að það hlýni aðeins og versta snjóinn taki upp.
Um bloggið
Hér og þar og alls staðar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.