Fimmtudagur, 23. október 2014
Froða
Kem þessu hér með á framfæri ef einhverjir hrekkjalómar þarna úti vilja nýta sér það:
Ónefnd vinkona mín fékk gesti og bar á borði fyrir þá dýrindis franska súkkulaðiköku og rjóma í rjómasprautu. Einn gesturinn spurði hvað hún hefði sett í kökuna sem léti smella í henni á tungunni. Allir fóru að velta þessu fyrir sér, þar til gestgjafinn uppgötvaði að það var rjóminn en ekki kakan sem framkallaði smellina. Einn gesturinn hafði á orði að bragðið af rjómanun væri eins og það væri sódavatn saman við hann hann væri froðukenndari en hann ætti að vera og það væri kolsýrubragð af honum.
Þá rann upp ljós fyrir gestgjafanum: hún hafði keypt nýja tegund af gashylkjum. Pakkinn var sóttur og þá kom í ljós að í staðinn fyrir rjómasprautugas hafði hún gripið lítil kolsýruhylki fyrir gosvélar.
Kolsýran hafði blandast rjómanum þannig að borða hann var eins og að borða Pop Rocks-sælgæti, sem springur á tungunni og framkallar smelli. Þetta má vel útfæra sem hrekk, þó að það væri auðvitað ennþá sniðugra að fela Pop Rocks í lituðu kremi á köku, en þá verða menn líka að vera snöggir að bera kökuna fram áður en lætin byrja.
Meginflokkur: atvik úr daglega lífinu | Aukaflokkur: hrekkir | Breytt s.d. kl. 18:39 | Facebook
Um bloggið
Hér og þar og alls staðar
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.